Einkaþjálfun og sund á Tenerife

Hreyfing á að vera skemmtileg.

Hákon Jónsson er íþróttafræðingur og sundþjálfari, búsettur á Tenerife. Einkaþjálfun á eyjunni, fjarþjálfun hvar sem þú ert, hópar úti í sólinni og sund.

Fyrsta samtalið er ókeypis

teneheilsa@gmail.com +354 777 6565

Hákon Jónsson við sundlaugarbakkann
2005Þjálfað sund síðan
HR 2014Íþróttafræði, BSc
TenerifeBýr í Los Cristianos

Einkaþjálfun

Vantar þig stuðning til að ná þínum markmiðum?

Í einkaþjálfun hjá mér færð þú persónulega og faglega nálgun þar sem þínar þarfir eru alltaf í fyrirrúmi. Ég legg áherslu á að byggja upp sterkan og heilbrigðan líkama til frambúðar.

Sérsniðið æfingaprógram

Engir tveir líkamar eru eins. Þú færð æfingaáætlun sem er hönnuð út frá þínum markmiðum, getu og bakgrunni.

Kennsla um líkamsbeitingu

Við leggjum áherslu á rétta tækni og hreyfimynstur. Þú lærir ekki bara hvað á að gera, heldur líka af hverju og hvernig, til að lágmarka álag á liði og hámarka árangur.

Tillit til meiðsla og takmarkana

Ef þú glímir við gömul eða ný meiðsli, stoðkerfisvanda eða aðrar takmarkanir aðlögum við æfingarnar að því og byggjum þig upp á öruggan hátt.

Hvort sem markmiðið er aukinn styrkur, betra þol, verkjaminni hversdagur eða einfaldlega að koma sér upp góðri rútínu, þá leiðbeini ég þér skref fyrir skref.

Hver tími er 60 mín, nema samið sé um annað. Ég kem heim til þín eða við hittumst úti, á Los Cristianos, Las Américas eða Adeje svæðinu. Ef þú ert annars staðar á eyjunni er velkomið að senda mér línu.

Sendu mér línu
Verðskrá, einn
LeiðVerðVerð á tíma
2x í viku60.000 kr./mán.um 6.900 kr.
1x í viku36.000 kr./mán.um 8.300 kr.
2x í mánuði19.000 kr./mán.9.500 kr.
10 tíma kort, gildir í 4 mán.85.000 kr.8.500 kr.
5 tíma kort, gildir í 2 mán.45.000 kr.9.000 kr.
Stakur tími10.000 kr.10.000 kr.
Verðskrá, tvö eða þrjú saman, 2x í viku
FjöldiVerð á mannSamtals
Tvö40.000 kr./mán.80.000 kr./mán.
Þrjú35.000 kr./mán.105.000 kr./mán.

Tímakortin henta vel þeim sem fara reglulega heim til Íslands og vilja ekki borga mánaðargjald á meðan.

Öll verð eru í íslenskum krónum. Hægt er að greiða í krónum og evrum.

Fjarþjálfun

Æfðu þegar þér hentar, hvar sem þú ert.

Í fjarþjálfun færðu æfingaáætlun frá mér og stuðning til að halda henni. Þú æfir á þínum tíma, á Tenerife, heima á Íslandi eða hvar sem er. Ég fylgist með árangrinum, svara spurningum og uppfæri prógramið á fjögurra vikna fresti.

Grunnpakki 1, styrkur7.000 kr. á mánuði

Einföld styrktaráætlun með eftirfylgni. Þú velur heimaútgáfu, þar sem unnið er með eigin líkamsþyngd, eða ræktarútgáfu með handlóðum og helstu tækjum. Hentar þeim sem hafa reynslu af líkamsrækt.

Grunnpakki 2, sérsniðinn styrkur11.000 kr. á mánuði

Styrktarprógram sem er sett upp út frá líkamlegu ástandi þínu, getu og þeim búnaði sem þú hefur aðgang að. Hentar þeim sem hafa litla reynslu af líkamsrækt og/eða glíma við meiðsli eða aðra takmarkandi þætti.

Grunnpakki 3, sérsniðinn styrkur með kennslu19.000 kr. á mánuði

Allt sem er í pakka 2, auk 60 mín kennsluhittings í hverjum mánuði. Þegar nýjar æfingar bætast við förum við saman yfir framkvæmdina, aðlögum það sem þarf og svörum spurningum. Hentar þeim sem vilja æfa sjálf en þykir gott að fá leiðsögn og öryggi í tækninni, án þess að vera í einkaþjálfun.

Sendu mér línu
Verðskrá
PakkiMánaðargjald
Grunnpakki 17.000 kr.
Grunnpakki 211.000 kr.
Grunnpakki 319.000 kr.með mánaðarlegum hittingi

Öll verð eru í íslenskum krónum. Hægt er að greiða í krónum og evrum.

Hópþjálfun

Hreyfing í góðum félagsskap.

Í hópþjálfun æfum við saman úti í sólinni. Það er ódýrari leið til að fá leiðsögn þjálfara og frábær leið til að kynnast öðrum Íslendingum á eyjunni.

Ekki þarf að skrá sig í hópana, bara mæta. Sundið er sér kafli, sjá Sund.

Göngu- og styrktarhópur

Rólegur gönguhópur með reglulegum pásum þar sem við tökum liðleika-, styrktar- og jafnvægisæfingar. Hugsaður fyrir 60+, en öll eru velkomin.

Golfarinn

Liðleika- og styrktaræfingar fyrir golfara, með áherslu á það sem skilar sér í sveifluna og hringinn.

Strandþrek

Liðleiki, styrkur og þrek á ströndinni. Hugsaður fyrir 60+, en öll eru velkomin.

Hóparnir eru væntanlegir. Staður og stund koma fljótlega. Sendu mér línu ef þú vilt fá tilkynningu þegar skráning opnar.

Sendu mér línu
Verð í hópþjálfun
LeiðVerð
Stakur tími1.400 kr.
10 skipta kort12.000 kr.

Öll verð eru í íslenskum krónum. Hægt er að greiða í krónum og evrum.

Sund

Tuttugu ár í lauginni.

Sund er það sem ég kann best. Ég hef þjálfað sund frá 2005 og hef stundað sjálfur frá níu ára aldri. Hvort sem þú vilt læra skriðsund frá grunni, laga tæknina, byggja upp þol eða koma barninu þínu örugglega af stað í vatninu, þá finnum við leið.

Sundhópurinn

Sundæfingar og kennsla, þrek og sund í Piscina Municipal de Los Cristianos. Fyrir þau sem vilja bæta tæknina, auka þolið eða einfaldlega synda reglulega með öðrum. Skrá þarf sig fyrir fram því ein braut tekur mest 8 manns.

Sundkennsla fullorðinna

Einkakennsla í sundi, ein eða allt að fjögur saman, 60 mín í senn. Hentar jafnt þeim sem eru óöruggir í vatni og þeim sem vilja fínpússa tæknina eða undirbúa sig fyrir þríþraut eða sjósund. Staðsetning eftir samkomulagi: í almenningslauginni, í hafinu eða í þinni eigin laug ef þú hefur aðgang að henni.

Sama verð gildir hvar sem kennslan fer fram.

Sundkennsla barna

Kennsla fyrir börn á hvaða getustigi sem er, allt frá vatnshræðslu yfir í að fínpússa tæknina hjá vel syndu barni. Mest tvö börn í einu og tímarnir eru 30 til 40 mín, sem er sá tími sem börn halda einbeitingu. Kennslan fer fram í almenningslaug eða einkalaug, ekki í sjónum.

Sendu mér línu
Sundhópurinn
LeiðVerð
Stakur tími2.000 kr.
5 skipta kort9.000 kr.
Sundkennsla fullorðinna
FjöldiVerð á mann
Eitt10.000 kr.
Tvö6.700 kr.
Þrjú5.400 kr.
Fjögur4.600 kr.
Sundkennsla barna
LeiðVerð
Eitt barn6.500 kr.
Tvö börn4.000 kr.á barn
5 skipta lota, eitt barn29.000 kr.
5 skipta lota, tvö börn18.000 kr.á barn

Aðgangur í laugina er greiddur á staðnum og er ekki innifalinn í verðinu. Í Piscina Municipal er hægt að kaupa kort með nokkrum skiptum í afgreiðslunni.

Öll verð eru í íslenskum krónum. Hægt er að greiða í krónum og evrum.

Hákon Jónsson í sjósundi

Um mig

Hákon Jónsson

  • Íþróttafræðingur (BSc) frá Háskólanum í Reykjavík, 2014
  • Sundþjálfari hjá Sunddeild Breiðabliks 2005 til 2026
  • Alþjóðlegt þjálfaranám Alþjóðaþríþrautarsambandsins (ITU), 2017
  • Skyndihjálp og björgun

Ég hef verið með báðar hendur og fætur í íþróttum frá því ég man eftir mér. Frá 9 ára aldri æfði ég og keppti í sundi með ágætum árangri. Síðan hef ég prófað ótal íþróttir, aðallega mér til skemmtunar, og alltaf haft gaman af því að fræðast um það sem ég tek mér fyrir hendur. Mest hef ég stundað hlaup á götu og utanvega, sund, hjólreiðar og þríþraut, en líka jóga, lyftingar, klifur, snjóbretti og pílukast.

Eitt það mest gefandi sem ég geri er að hjálpa fólki að koma sér af stað, finna taktinn í þeirri hreyfingu sem það velur og ná markmiðunum sem það setur sér. Ég hef reynslu af því að vinna með börnum og unglingum, en mesta reynslu af fullorðnum, allt frá ungu fólki til fólks á eftirlaunaaldri.

Ég flutti til Tenerife í byrjun ágúst 2026 og bý á Los Cristianos svæðinu. Hér býð ég Íslendingum á eyjunni upp á þjálfun á íslensku, í sól og góðu veðri allt árið.

Mín nálgun er einföld: hreyfing á að vera skemmtileg. Það er engin ein rétt leið, en það er alltaf hægt að finna leið til að koma hreyfingu inn í lífið og njóta hennar. Ég mæti þér þar sem þú ert stödd eða staddur og hjálpa þér að finna þína hreyfingu, létta, fjölbreytta og skemmtilega.

Það sem fólk segir

Umsagnir frá þátttakendum á skriðsundsnámskeiðum hjá mér. Safnað í nafnlausri könnun, svo nöfn komi ekki fram.

Mér fannst frábært hvað þetta var einstaklingsmiðað, öllum mætt þar sem þeir eru. Góður grunnur til að byrja synda skriðsund, ég kunni ekkert en syndi núna 2 til 3 í viku.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Gott að byggja það upp svona stig af stigi. Ekki farið of hratt yfir. Ég var bara mjög ánægð og fannst þessi tími líða alltof hratt. Ég hef öðlast miklu betra úthald í skriðsundinu og nýt þess núna að synda það sem ég náði ekki áður.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Frábært námskeið sem hentar öllum getustigum. Einstaklingsmiðuð nálgun og góð endurgjöf frá þjálfara. Sundið verður mun skemmtilegra þegar maður getur pælt betur í tækniatriðum og reynt að bæta sig.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Hákon hefur frábært auga fyrir því hvernig bæta má sundtæknina með einföldum æfingum.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Námskeiðið var mjög tæknilegt sem gerði það að verkum að maður lærði virkilega mikið á stuttum tíma. Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Góðar æfingar, persónuleg endurgjöf sem hjálpar til við bætingu á tækninni og skemmtilegir tímar. Skiptir engu máli á hvaða stað maður er þegar maður byrjar því endurgjöfin og ráðleggingar eru einstaklingsmiðaðar.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Mér fannst vel farið í æfingarnar og þægilega skipt upp, ekki of mikið í einu heldur einn meginn fókus í hverjum tíma. Mér fannst þetta skemmtilegt og einstaklega nytsamlegt og fróðlegt.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Hann fylgdist vel með manni og hjálpaði við að bæta líkamsbeitingu og tækni. Gott námskeið fyrir byrjendur sem lengra komna.

Þátttakandi á skriðsundsnámskeiði

Hvernig þetta virkar

  1. 1

    Sendu mér línu

    Nokkur orð um hvar þú ert staddur og hvað þig langar að gera.

  2. 2

    Ókeypis spjall

    Við förum yfir markmiðin þín og stöðuna. Engar skuldbindingar og ekkert gjald.

  3. 3

    Við byrjum

    Þú færð plan sem passar við þitt líf og ég fylgi þér alla leið.

Hafðu samband

Sendu mér línu, hvort sem þú ert tilbúin að byrja eða vilt bara spyrja að einhverju.

Fyrsta samtalið er ókeypis

Hnappurinn opnar tölvupóstforritið þitt með öllu útfylltu, tilbúið til sendingar á teneheilsa@gmail.com.

Skilmálar

Afbókun

Tíma þarf að afbóka með minnst 24 klst. fyrirvara, annars telst hann notaður.

Binditími

Enginn binditími. Mánaðaráskrift má segja upp með eins mánaðar fyrirvara.

Tímakort

Gilda í uppgefinn tíma frá fyrsta tíma og eru ekki endurgreidd.

Skráning í Sundhópinn

Plássin eru takmörkuð við 8 og því þarf að skrá sig fyrir fram. Afboðun með minnst 24 klst. fyrirvara, annars telst skiptið notað.

Greiðsla

Greitt er fyrir fram. Verð eru í íslenskum krónum og tekið er við greiðslum í krónum og evrum.

Heilsa

Ef þú ert með sjúkdóm eða meiðsli sem gætu haft áhrif á æfingar skaltu láta mig vita áður en við byrjum.

Sendu mér línu